Knattspyrnufélagið Valur

Íþróttaskóli Vals

Á vegum Knattspyrnufélagsins Vals er starfræktur Íþróttaskóli barnanna sem ætlaður er börnum á aldrinum 2-6 ára.

Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá, þar sem aðaláhersla er lögð á að efla skyn- og hreyfiþroska. Helstu viðfangsefni eru hópleikir, boltaleikir, áhaldahringir og stöðvaþjálfun.

Íþróttaskólinn fer fram á laugardögum í gamla og nýja salnum að Hlíðarenda frá 9:40 – 10:30.

Námskeiðið er tíu skipti og stendur frá 21. janúar-24. mars og kostar 8.000 krónur. Skráning og greiðsla námskeiðsgjalds fer fram á síðunni https://valur.felog.is/ 

Færri hafa komist að en vilja undanfarin ár og því leggjum við áherslu á að búið sé skrá og greiða áður en námskeiðið hefst.


Skólastjóri er Soffía Ámundadóttir leikskólasérkennari og þjálfari í Val og 3. fl.kv í knattspyrnu.