Knattspyrnufélagið Valur hefur tekið í notkun nýtt skráningaforrit sem ber nafnið Nóri. Nóri er einfalt skráningaforrit, en með þessari nýju skráningarsíðu verða skráningar markvissari, allar upplýsingar um iðkendur svo sem sími og netfang eins réttar og þær geta orðið. Þjálfarar geta haldið utan um mætingar iðkenda sinna og hafa betri yfirsýn yfir hópinn og innheimta verður skilvirkari.
Til þess að gerast notandi þarf forráðamaður að nýskrá sig og fyllir hann þá út allar upplýsingar um sig en símanúmer og netföng berast okkur sem færist sjálfkrafa í gagnagrunn félagsins. Ef netfang eða símanúmer forráðamanns breytist á tímabilinu, þarf hann að breyta því sjálfur inn í Nóra.
Þegar slóðin á heimasíðunni https://valur.felog.is/ er valin, þarf að samþykkja skilmála, síðan er farið í „Nýskráning“. Þá opnast nýr gluggi og þá á að færa inn kennitölu (án bandstriks).

Hér þarf að fylla inn netfang og síma og velja sér lykilorð. Ekki þarf að bíða eftir að lykilorðið sé samþykkt, en nauðsynlegt er að geyma það vel. Þá þarf að samþykkja skilmála og skrá. Þetta er bara gert í upphafi við nýskráningu, næst þegar farið er inn í kerfið er farið í „Innskráning“.
Þá er skráningin komin inn í kerfið og þá þarf að skrá börnin inn. Valið er “Nýr iðkandi“ og birtast þá börn viðkomandi, þá þarf að skrá við þau netföng og símanúmer og eru þau síðan valin inn í kerfið. Til að sjá námskeið sem í boði eru fyrir hvern iðkanda þarf að smella á “Námskeið/Flokkar í boði“ og birtast þá þau námskeið hjá Val sem í boði eru fyrir iðkandann.
Þá er einfalt að velja námskeiðið og skrá inn og greiða. Hægt er að nota Frístundakortið í Reykjavík, sé þess óskað er hakað í “Nota frístundastyrk“ og skráist þá barnið sjálfkrafa í Rafræna Reykjavík á það námskeið sem valið er.
Forráðamaður þarf að fara inná Rafræna Reykjavík og ráðstafa styrknum þar og fara svo aftur inná barnið í “Mínir iðkendur” og velja aftur viðkomandi námskeið, haka
aftur við „Nota frístundastyrk“ og þá hefur upphæðin sem ráðstafað var dregist frá heildargjaldinu.
Þá er ekkert annað eftir en að klára greiðsluna og er þá barnið skráð í sína íþrótt.
Greiðslur án kreditkorts fara fram á skrifstofu Vals eða í síma 414-8000 á skrifstofutíma kl.09:00-16:00.