Knattspyrnufélagið Valur

Breytingar á stjórn knattspyrnudeildar Vals

Formaður og varaformaður knattspyrnudeildar Vals hafa, ásamt formönnum meistaraflokksráðs og heimaleikjaráðs, látið af stjórnarstörfum fyrir Val. Þeir E. Börkur Edvardsson, Jón Grétar Jónsson, Bragi G. Bragason og Jón Höskuldsson hafa um sjö ára skeið leitt knattspyrnudeild Vals, tímabil sem hefur verið með þeim sigursælustu í sögu félagsins. Sex Íslandsmeistara- og fjórir bikarmeistaratitlar í meistaraflokki kvenna og bikar- og Íslandsmeistaratitill í meistaraflokki karla segja sína sögu.

Aðalstjórn Vals samþykkti á fundi sínum fyrr í dag tillögu þess efnis að Friðjón R. Friðjónsson taki við formennsku í stjórn knattspyrnudeildarinnar.

Knattspyrnufélagið Valur stendur í mikilli þakkarskuld við fráfarandi stjórnarmenn fyrir þá þrotlausu vinnu sem þeir hafa innt af hendi undanfarin ár sem stjórnarmenn í knattspyrnudeild Vals.

Hlíðarendi, 27. ágúst 2010

Stefán Karlsson
Framkvæmdastjóri