Knattspyrnufélagið Valur

Hlíðaskóli skólameistari Vals og Háteigsskóli fékk stuðningsmannaverðlaunin

Mikið líf og fjör ríkti í Vodafone höllinni á Skólaleikum Vals í dag. Leikunum lauk með sigri Hlíðaskóla eftir jafna og spennandi keppni við hina skólana tvo og  fékk Háteigsskóli stuðningsmannaverðlaunin. Þá vann Margeir Þór Hauksson keppni í bocchia. Margir þjálfarar og leikmenn Vals hjálpuðu til við leikana Sigfús Sigurðsson var kynnir og Óskar Bjarni og Gunnlaugur Jóns sáu um tónlistina. Leikmenn og þjálfarar körfunnar aðstoðuðu einnig og Byron leikmaður mfl.karla sýndi ótrúleg tilþrif við að troða í körfuna. Leikarnir gengu í alla staði vel fyrir sig og voru krakkarnir sér og skólum sínum til mikils sóma. Takk fyrir komuna krakkar og fyrir frábæran dag!!