Yngri flokkarnir á aðalvellinum í alvöru umgjörð!
Þessi misserin leika fjórir af yngri flokkum Vals í knattspyrnu heimaleiki sína á aðalvelli félagsins, sjálfum Vodafone vellinum. Öll umgjörð leikjanna hefur verið hin glæsilegasta, líkt og við Valsmenn þekkjum frá heimaleikjum okkar. Félagið skorar á stuðningsmenn, foreldra og iðkendur í öllum flokkum að fjölmenna á völlinn þessa leikdaga, skemmta sér og hvetja Val til sigurs.
Nú þegar hefur 3 flokkur kvenna ásamt 4. flokki karla og kvenna leikið á vellinum og hefur framkvæmdin heppnast frábærlega. Í kvöld er komið að síðasta leiknum í þessari seríu þegar 3. flokkur karla tekur á móti Njarðvík kl. 18:00.
Heiðursgestir á hverjum leik eru tveir leikmenn úr meistaraflokkum félagsins sem heilsa munu upp á leikmenn um leið og leikmenn verða kynntir. Í hálfleik mun 10 áhorfendum, iðkendum úr 5-8 flokki félagsins, gefast kostur á að skora úr vítaspyrnu hjá meistaraflokksmarkmönnum og hljóta þeir sem það tekst, 1,500 kr. vöruúttekt úr Partýbúðinni.
Emmessís býður öllum iðkendum yngri flokka ókeypis ís í öllum leikjum og Fálkarnir selja SS pylsur í Myllubrauði af grillinu til styrktar unglingastarfi félagsins.
Komið og takið þátt í þessari einstöku upplifun ungra iðkenda okkur, jafn framtíðarleikmanna meistaraflokks svo og hinna sem leika munu einn eftirminnilegasta leik ævinnar!
Fálkarnir munu leiða kröftugt ÁFRAM VALUR úr stúkunni! Koma svo, allir með!