Knattspyrnufélagið Valur

Haraldur Björnsson

  • Treyjunúmer: 1
  • Hæð: 186 cm
  • Staða: Markmaður
  • Þyngd: 84 kg
  • Fæðingardagur: 11. janúar 1989
  • Landsleikir/mörk: A: 0/0 -- U21: 12/0
  • Fyrri félög: Bröndby, Hearts

- Í láni hjá Þrótti sumarið 2010 - 

Efnilegur markmaður sem spilar með Þrótti í sumar á láni. Haraldur barðist við Kjartan Sturluson um byrjunarliðssæti í fyrra, en fær nú að spreyta sig sem fyrsti valkostur í Laugardalnum. 

Fullt nafn? Haraldur Björnsson

Treyjunúmer og af hverju valdir þú það?  23 - 1 var ekki laust og 23 er flottasta talan á eftir því, stór nöfn sem hafa verið í 23.

Uppáhalds staða á vellinum? Milli stanganna þar sem ég á heima

Hver var átrúnaðarleikmaðurinn þegar þú varst gutti?  Buffon í markinu og Del Piero

Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað?  Hearts í Skotlandi

Hver er þín fyrsta minning um Gulla Jóns?  Æfði með KR í mánuð sumarið sem þeir áttu að falla þá var Gulli að spila.

Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra?  Félagsfræðinemi í FÁ.

Hver er frægasti ættingi þinn?  Hemmi Gunn er víst skyldur mér eitthvað, aldrei talað við kauða samt.

Uppáhalds band og lag? Alltof erfið spurning Don't Look Back In Anger kveikir alltaf í mér !