Fyrirliði Vals frá 2006 til 2008, verður fyrirliði í sumar. Hefur spilað með Val í fimm tímabil, og aðeins misst af fjórum leikjum. Atli Sveinn er mikilvægur liðinu, hættulegur í föstum leikatriðum og bindur vörnina saman.
Fullt nafn? Atli Sveinn Þórarinsson
Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? 5, man það ekki.
Uppáhalds staða á vellinum? Free roll...
Hver var átrúnaðarleikmaðurinn þegar þú varst gutti? Franco Baresi og Neil Ruddock
Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað? KA og Örgryte
Hver er þín fyrsta minning um Gulla Jóns? Hægri bakvörður á blússandi ferð upp kantinn
Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra? Rífast við krakka
Hver er frægasti ættingi þinn? Þetta eru allt Working class heroes.....
Uppáhalds band og lag? Cascada með Evacuate the dance floor