Knattspyrnufélagið Valur

Ellert Finnbogi Eiríksson

  • Treyjunúmer: 28
  • Hæð: 186 cm
  • Staða: Varnarmaður
  • Þyngd: 82 kg
  • Fæðingardagur: 4. mars 1989
  • Landsleikir/mörk: 0/0
  • Fyrri félög:
Í láni hjá Hvöt

Uppalinn Valsmaður sem fór til Hamars í Hveragerði í fyrra og stóð sig vel. Spilaði marga leiki í vetur og leysti bæði vinstri og hægri bakvarðastöðuna. Yngri bróðir Bjarna Ólafs Eiríkssonar landsliðsmanns og fyrrum fyrirliða Vals.

Fullt nafn? Ellert Finnbogi Eiríksson

Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? 28 Svosem engin sérstök ástæða.

Uppáhalds staða á vellinum? Báðir bakverðirnir eru vanmetnir

Hver var átrúnaðarleikmaðurinn þegar þú varst gutti? Fylgdist alltaf mikið með bróður mínum, Bjarna Ólafi

Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað?
Spilaði eitt tímabil í 2.deildinni með Hamar í Hveragerði.

Hver er þín fyrsta minning um Gulla Jóns?
Ætli það sé ekki bara þegar ég spilaði æfingaleik með Hamri og hann var að spila með Selfoss

Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra?
Tók mér eitt frí frá námi eftir Verzlunarskólann og starfa núna í Landsbankanum.

Hver er frægasti ættingi þinn?
Það hlýtur að vera Bjarni Ólafur. Heyrði reyndar að ég væri eitthvað skyldur Björk Guðmunds, sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Uppáhalds band og lag?
Það eru mörg bönd í uppáhaldi en ef ég ætti að einu þá eru Coldplay seint þreyttir. Uppáhalds lagið í dag er samt Little Lion Man með Mumford and Sons. Þakka Hauki fyrir góða ábendingu þar!