Knattspyrnufélagið Valur

Rúnar Már Sigurjónsson

  • Treyjunúmer: 8
  • Hæð: 179 cm
  • Staða: Miðjumaður
  • Þyngd: 78 kg
  • Fæðingardagur: 18. júní 1990
  • Landsleikir/mörk: 5/0 U-19
  • Fyrri félög:
Uppalinn á Sauðarkróki og spilaði sinn fyrsta leik með Tindastóli árið 2005 þá aðeins rúmlega 14 ára gamall. Skipti yfir í HK árið 2007 og spilaði sinn fyrsta leik með þeim í Landsbankadeildinni árið 2008. Duglegur miðjumaður sem hefur staðið sig mjög vel á undirbúningstímabilinu og sannarlega framtíðina fyrir sér.

Fullt nafn? Rúnar Már S. Sigurjónsson

Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? 15

Upphalds staða vellinum? Miðjunni.

Hver var átrúnaðarleikmauðrinn þegar varst gutti? Ronaldo "feiti" var mitt fyrsta átrúnaðargoð og svo kom Roy Keane aðeins seinna. Hérna á Íslandi voru það goðsagnirnar Sveinbjörn Jón Ásgrímsson og Kristmar Geir Björnsson þegar þeir voru upp sitt besta Sauðárkróki.

Með hvaða liðum öðrum en Val hefur spilað? Tindastól og HK.

Hver er þín fyrsta minning um Gulla Jóns? Ég man nú eftir honum fyrst þegar hann var upp Skaga en svona mín fyrsta minning um hann er þegar ég klobbaði hann í U-23 ára leik fyrir 2 árum þegar hann var í KR.

Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra? Ég starfa nú hjá Ölgerðinni.

Hver er frægasti ættingi þinn? Flestir ættingjarnir mínir búa fyrir norðan og þar eru þeir nánast allir frægir, en ég gæti nefnt Eyþór Árnason sem fékk Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2009 fyrir ljóðabókina Hundgá úr annari sveit, ætli hann sé ekki sá frægasti...

Upphalds band og lag? Ég get ekki litið framhjá Geirmundi Valtýssyni sveiflukóngi Íslands og laginu hans "Nú er ég léttur..."