Knattspyrnufélagið Valur

Haukur Páll Sigurðsson

  • Treyjunúmer: 21
  • Hæð: 180 cm
  • Staða: Miðjumaður
  • Þyngd: 85 kg
  • Fæðingardagur: 5. ágúst 1987
  • Landsleikir/mörk: 1/0 U-21
  • Fyrri félög:

Uppalinn hjá Þrótti Reykjavík og var 16 ára þegar var farinn að láta sér kveða með meistaraflokknum. Var lykilmaður hjá Þrótturum í Úrvalsdeildinni í fyrra en var lánaður í norska 1.  deildar liðið ALTA um haustið og spilaði með þeim 9 leiki. Góð viðbót við miðjumannahóp Vals. Haukur gefur alltaf sitt besta í hvern leik, lokar miðjusvæðinu vel og er stórhættulegur í föstum leikatriðum.

Fullt nafn?  Haukur Páll Sigurðsson.


Treyjunúmer og af hverju valdir þú það?
  Treyja númer 21 var fyrir valinu þar sem Dóri setti mig í hana alls ekkert ósáttur við það. Hef reyndar alltaf verið númer 7 en maður er ekkert að gera tilkall á sjöuna þegar Bjössi er með hana.


Uppáhalds staða á vellinum? 
Miðjan er uppáhalds staðan, eftir að hafa spilað allar stöður á vellinum, þá er skemmtilegast að vera að berjast inni á miðjunni.


Hver var átrúnaðarleikmaðurinn þegar þú varst gutti?
Klárlega besti leikmaður sem spilað hefur fyrir Liverpool og Real Madrid, Steve McManaman.


Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað?
Þróttur Reykjavík og Alta í Noregi.


Hver er þín fyrsta minning um Gulla Jóns?
  Þegar maður sá hann í Skagabúningnum.


Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra
? Eins og er er það einungis fótbolti, en maður var orðinn frægur á lagernum í Olís.


Hver er frægasti ættingi þinn? 
Veistu ég held ég eigi bara engann lands frægan ættingja.


Uppáhalds band og lag?
  Mumford & Sons eru að koma mjög sterkir inn Little Lion Man klikkar ekki hjá þeim, mæli með að fólk kíki á þessa öflugu bresku hljómsveit.