Knattspyrnufélagið Valur

Baldur Aðalsteinsson

  • Treyjunúmer: 10
  • Hæð: 179 cm
  • Staða: Vængmaður
  • Þyngd: 75 kg
  • Fæðingardagur: 12. febrúar 1980
  • Landsleikir/mörk: 8/0 A-landsleikir
  • Fyrri félög:
Uppalinn í Húsavík en skipti yfir til ÍA árið 1999 þá aðeins 19 ára gamall. Kom töluvert við sögu á fyrsta ári en festi sig svo í sessi árið eftir.  Skoraði sigurmarkið í Bikarúrslitaleikjunum árið 2000 með ÍA og með Val árið 2005.  Skipti yfir í Val árið 2004 þegar liðið var í 1. deild.

Fullt nafn? Baldur Ingimar Qti Aðalsteinsson 

Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? Er númer 10, á uppvaxtarárunum var ég alltaf nr. 10 þar sem flestar hetjurnar voru nr. 10.   

Uppáhalds staða á vellinum? Ég hef lengi stefnt að því að verða sweeper í anda Franz Beckenbauer. 

Hver var átrúnaðarleikmaðurinn þegar þú varst gutti? Beckenbauer, Stefan Effenberg, Matthias Sammer, Oliver Kahn, Tony Dorigo og Per Tomas Brolin. 

Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað? Völsungi, Magna Grenivík, Stjörnunni, Þór, Bolton, FC Brussels, Lyn,  ÍA og KFC Uerdingen.

Hver er þín fyrsta minning um Gulla Jóns? Veturinn 1999 í búningsklefa ÍA með eina stærstu snyrtitösku sem ég hafði augum litið. 

Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra? Ég er deildarstjóri hjá Vinnumálastofnun. 

Hver er frægasti ættingi þinn? Ætli það sé ekki Nikulás Buch. Fyrsti skíðakennarinn sem vitað er um á Íslandi, en hann kenndi fólki að skíða og búa til skíði á Húsavík á 18. öld. 

Uppáhalds band og lag? Er alæta á tónlist en lagið Nostalgía með Súkkat er mest spilaða lagið í iTunesinu mínu.