Fljótur og leikinn vinstri-kantmaður sem er uppalinn í Fram. Fékk töluvert að spila í vetur og lofar mjög góðu fyrir framtíðina.
Fullt nafn? Þórir Guðjónsson
Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? nr.27, mér var gefið það.
Uppáhalds staða á vellinum? Vinstri kantur
Hver var átrúnaðarleikmaðurinn þegar þú varst gutti? Það var Edgar Davids og Kluivert
Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað? Fram
Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra? Ég er í Fjölbraut við Ármúla að læra að lesa og skrifa.
Hver er frægasti ættingi þinn? Uuu veit ekki
Uppáhalds band og lag? Uppáhalds lag þessa stundina er Pass Out með Tinie Tempah en uppáhalds band er Artic Monkeys og Oasis.