Ungur og kraftmikill sóknarmaður sem kom inní Valsliðið undir lok síðasta tímabils. Uppalinn Valsmaður sem mun án efa banka fast á dyr aðalliðsins í sumar.
Fullt nafn? Arnar Sveinn Geirsson
Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? 18, því mér var gefið það. Það er þó alveg ágætis tala, þó að 11 sé alltaf betri.
Uppáhalds staða á vellinum? Senter
Hver var átrúnaðarleikmaðurinn þegar þú varst gutti? Thierry Henry og er það enn. Uppáhalds íþróttamaðurinn minn er hins vegar Ólafur Stefánsson
Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað? Hreinn VALSARI
Hver er þín fyrsta minning um Gulla Jóns? Þegar hann heilsaði upp á hópinn í fyrsta sinn.
Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra? Ég er á 3. ári í Verzlunarskólanum
Hver er frægasti ættingi þinn? Ætli það sé ekki pabbi, Geir Sveinsson
Uppáhalds band og lag? Manic Street Preachers - My Little Empire og allur Jay Z diskurinn Blueprint 3