Vinstri bakvörður sem getur einnig spilað fyrir miðri vörn eða aftarlega á miðjunni. Kemur til Vals sem lánsmaður frá danska liðinu Vejle leiktímabilið 2010, en með því liði og uppeldisfélagi sínu Álaborg hefur hann spilað leiki í Meistaradeild Evrópu. Danskur meistari með AAB árið 2007.
Fullt nafn? Martin Meldgaard Pedersen
Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? Hjá Val spila ég númer 3, alveg eins og þegar ég var hjá Aalborg, það er uppáhalds númerið mitt.
Uppáhalds staða á vellinum? Uppáhalds staðan mín er í miðverðinu eða aftast á miðjunni, og svo auðvitað í vinstri bakverði.
Hver var átrúnaðarleikmaðurinn þegar þú varst gutti? Hetjan mín þegar ég var að alast upp var Búlgarinn Hristo Stoichkov - frábær leikmaður og með hugarfar sigurvegara!
Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað? Aalborg, SønderjyskE og Vejle í Danmörku.
Hvað lærðir þú þegar þú varst í skóla? Sálfræði og sögu.
Hver er frægasti ættingi þinn? Hahaha, pabbi var góður boxari, en kannski ekki svo frægur!
Uppáhalds band og lag? Ég er alger alæta á tónlist, popp, rokk eða dans, skiptir ekki máli...
