| Maja eins og hún er kölluð gekk til liðs við Val stuttu fyrir keppnistímabilið 2009. Það var sannarlega happafengur fyrir félagið því Maja er einn allra besti markvörður landsins, með gríðarlega reynslu, skilar sínu hlutverki ávallt vel og er nánast undantekningalaust frábær í stórleikjum. |
| |
|
Fullt nafn?
María Björg Ágústsdóttir |
Treyjunúmer og af hverju valdir þú það?
#1. Búningurinn var merktur og klár þegar ég mætti. |
Uppáhalds staða á vellinum?
Sóknartengiliður, enda þekkt fyrir góða takta í reit. |
Hver var átrúnaðargoðið þegar þú varst lítil?
Peter Schmeichel og Vigdís Finnbogadóttir. |
|
Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað?
Stjörnunni, KR og bronsliðinu hjá Glitni |
Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú heyrir orðin Freyr og Alexandersson?
Hot Yoga. |
Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra?
Vinn hjá gamla Glitni. Menntaður hagfræðingur. |
Hver er frægasti ættingi þinn?
Ætli það sé ekki Jón Ólafsson langa-langafi minn sem orti "Máninn hátt á himni skín" og fór einu sinni á djammið með Ulysses Grant Bandaríkjaforseta og lánaði honum hálfan silfurdal fyrir bjór. Hann hefði orðið 160 ára í mars síðastliðnum. |
Uppáhalds band og lag?
Hjaltalín - 7 years, U2 og Mary J. Blige með lagið One og svo finnst mér lagið Over the Rainbow alltaf jafn fallegt og gleðjandi. |