Knattspyrnufélagið Valur

Bryndis Lára Hrafnkelsdóttir

  • Treyjunúmer: 16
  • Hæð: cm
  • Staða: Markmaður
  • Þyngd: kg
  • Fæðingardagur: 11. janúar 1991
  • Landsleikir/mörk:
  • Fyrri félög:

Sveitastelpan og pylsusalinn Bryndís er uppalinn á sveitabænum Kúfhóli þar sem hún hefur lagt stund á búskap frá blautu barnsbeini. Bryndís er gríðarlega flottur íþróttamaður sem býr yfir ótrúlegum líkamlegum hæfileikum. Bryndís er einn allra efnilegasti markvörður landsins en hefur ekki hlotið náð fyrir augum landsliðsþjálfara.

Fullt nafn? Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir

Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? 16, var bara sett í það, svaka fínt.
 
Besti vinur/vinkona þín í Val er? Orri


Uppáhalds staða á vellinum?
Markið en hægri kannturinn er að koma sterkur inn.


Hver var átrúnaðargoðið þegar þú varst lítil?
Marion Jones


Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað?
KFR og sameiginlegu liði KFR/Ægir


Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú heyrir orðin Freyr og Alexandersson?
Faðir og  Breiðholtið


Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra?
Pylsusali ársins, Tanntækni


Hver er frægasti ættingi þinn?
KK, tónlistarmaður með meiru.


Uppáhalds band og lag?
Todmobile, stúlkan. Pála er samt meira og meira að kynna mér fyrir Cascada svo....