Knattspyrnufélagið Valur

Pála Marie Einarsdóttir

  • Treyjunúmer: 3
  • Hæð: cm
  • Staða: Varnarmaður
  • Þyngd: kg
  • Fæðingardagur: 15. desember 1984
  • Landsleikir/mörk:
  • Fyrri félög:

Pála er ekki kölluð kletturinn fyrir ekki neitt. Pála hefur leikið 117 leiki í efstu deild kvenna og er á góðri leið með að verða einn allra sigursælasti leikmaður í efstu deild kvenna frá upphafi.  Pála hefur orðið sex sinnum Íslandsmeistari með Val og fimm sinnum bikarmeistari ásamt því að hampa fjölmörgum öðrum verðlaunum. Hún er sannkallaður sigurvegari.

Fullt nafn? Pála Marie Einararsdóttir

Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? 3, uh Babe Ruth tók 714 homeruns í #3,auðvelt val!
 
Besti vinur/vinkona þín í Val er?  Get nú ekki gert uppá milli þessara elskna, Mökbera, móðirin, Blóðbjörg, ungfrú Valur og allar hinar eiga sérstakan stað í hjarta mínu.


Uppáhalds staða á vellinum? 
Fyrir miðju á mínum vallarhelming er ég í kjörstöðu


Hver var átrúnaðargoðið þegar þú varst lítil?
Jón Páll Sigmarsson, pabbi, Rúnar Kristins og Eyjólfur Sverris, góð blanda.


Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað?
Haukar Haukar við látum aldrei bugast . . . svo spilaði ég nú í sameiginlegu liði SRE hérna um árið.


Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra?
SMFR, læri ýmist íslensku eða táknmál í HÍ


Hver er frægasti ættingi þinn? 
Sigurður Pétur Sigmundsson,algjört legend í hlaupaheiminum, meina ríkjandi Íslandsmethafi í hálfmaraþoni og maraþoni = celeb.


Uppáhalds band og lag?
Euro-bandið og lagið Would I Lie To You Baby, alltaf jafn ljúft.