Thelma Björk Einarsdóttir
Thelma kom eins og stormsveipur inn í lið Vals á keppnistímabilinu 2009. Hún hefur gengið í gegnum alla yngri flokka Vals og býr því yfir gríðarlega mikilli tækni. Boltameðferð hennar er framúrskarandi og Thelma er einn allra efnilegasti leikmaður Íslands og hefur nú þegar hlotið eldskírn með íslenska A-landsliðinu.