Einn leikjahæsti og sigursælasti leikmaður allra tíma í íslenskri knattspyrnu Embla Grétarsdóttir gekk til liðs við Val fyrir keppnistímabilið 2009. Embla er ein sú harðasta í bransanum en er að sama skapi gríðarlega klók, hún hatar að tapa og smitar liðsfélga sína af einstöku keppnisskapi. Embla er frábær liðsmaður sem er ómetanleg í okkar röðum.
Fullt nafn? Embla Sigríður Grétarsdóttir
Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? 21, af því að Hallbera er í 11unni minni ;)
Uppáhalds staða á vellinum? Bakvörður eða aftarleg miðja
Hver var átrúnaðargoðið þegar þú varst lítil? Eric Cantona
Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað? Sindra, KR, Christian Brothers University og Calciosmania
Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra? Er í sálfræði í HR
Hver er frægasti ættingi þinn? Amma þykist vera skyld Kristjáni Jóhannssyni óperusöngvara en ég veit ekki hvað er mikill sannleikur í því
Uppáhalds band og lag? Ég er voðalega ómúsikölsk, hlutsta bara á það sem er í gangi hverju sinni!