Björk Gunnarsdóttir er uppalin í Garðabænum þar sem hún hefur spilað frábærlega undanfarin ár. Hún hefur skorað 87mörk í 161 leikjum þegar þetta er skrifað og er því svo sannarlega markamaskína. Björk gekk til liðs við Val haustið 2009.
Fullt nafn? Björk Gunnarsdóttir
Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? Nr. 22, 2+2 = 4
Uppáhalds staða á vellinum? Frammi
Hver var átrúnaðargoðið þegar þú varst lítil? Michael Owen
Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað? Stjörnunni
Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra? Er í master í lyfjafræði
Hver er frægasti ættingi þinn? Man engan í augnablikinu
Uppáhalds band og lag? Dikta og Hotel feelings