Ein allra efnilegasta knattspyrnukona landsins er Dagný Brynjarsdóttir. Hún gekk til liðs við Val í 3. flokki aðeins 16 ára gömul án bílprófs en búsett á Hellu. Með góðri hjálp foreldra tóks Dagnýju að stunda æfingar með Val af miklum krafti frá upphafi og er í dag einn allra skemmtilegasti leikmaður liðsins. Dagný er gríðarlega fjölhæf og býr yfir mörgum hæfileikum sem andstæðingarnir eiga erfitt með að mæta.
Fullt nafn? Dagný Brynjarsdóttir
Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? 10an er best en hún er auðvitað upptekin svo ég valdi mér 14 útaf því að Henry er svo sjúklega góður.
Besti vinur/vinkona þín í Val er? Æji ég get eiginlega ekki gert uppá milli þeirra, þær eru allar sjúklega æðislegar!!
Uppáhalds staða á vellinum? Fyrir aftan senterinn
Hver var átrúnaðargoðið þegar þú varst lítil? Ronaldo, Figo og Rivaldo.
Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað? KFR (Knattspyrnufélag Rangæinga)
Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú heyrir orðin Freyr og Alexandersson? Hann að ljúga að mér að hann sé pabbi hennar Fionu.
Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra? Er á Íþróttabraut í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.
Hver er frægasti ættingi þinn? Magga frænka sem komst í Vetrargarðinn í Idolinu!
Uppáhalds band og lag? Hear you me með Jimmy Eat World en á eiginlega ekkert uppáhalds band!