Knattspyrnufélagið Valur

Kristín Ýr Bjarnadóttir

  • Treyjunúmer: 9
  • Hæð: cm
  • Staða: Framherji
  • Þyngd: kg
  • Fæðingardagur: 1. febrúar 1984
  • Landsleikir/mörk:
  • Fyrri félög:

Markadrottning og einn allra besti skallamaður í kvennaknattspyrnu frá upphafi. Kristín Ýr Bjarnadóttir hefur leikið alla tíð fyrir Val eftir að hún sleit barnskónum með strákunum í Leikni. Kristín Ýr er frábær sóknarmaður sem varnarmenn andstæðngana hræðast stöðugt og er ástæða til. Kristín átti í gríðarlega erfiðum meiðslum en vann sig út úr þeim með miklum dugnaði og aga.

Fullt nafn? Kristín Ýr Bjarnadóttir

Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? Nr. 9 Talan valdi mig... þetta var bara samband sem var meant to be.
 
Besti vinur/vinkona þín í Val er? Erfitt að gera upp á milli þessara uppöldu sem hafa fylgt manni upp yngri flokkana


Uppáhalds staða á vellinum?
  Fremst.


Hver var átrúnaðargoðið þegar þú varst lítil?
Ég hélt alltaf að ég hafi ekki átt neitt slíkt en ég man að ég vidi alltaf óska þess í yngri flokkum að ég væri að spila með Laufey Ólafsdóttur í liði..


Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað?
Ég hóf "ferilinn" nú í Vesturbænum þegar ég fékk að fara með eldri bróður mínum á nokkrar æfingar hjá KR en svo fór ég í Leikni og spilaði þar með strákum þangað til ég var 12 ára og þá fór ég í Val og hef verið þar síðan.


Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra? Ég er að þjálfa hjá yngri flokka kvenna.


Hver er frægasti ættingi þinn?
Hilmir Snær Guðnason :)


Uppáhalds band og lag?
Queen hlýtur titilinn besta bandið og ég bara get ekki valið 1 lag.