Knattspyrnufélagið Valur

Dóra María Lárusdóttir

  • Treyjunúmer: 10
  • Hæð: cm
  • Staða: Miðjumaður
  • Þyngd: kg
  • Fæðingardagur: 24. júlí 1985
  • Landsleikir/mörk:
  • Fyrri félög:

Einn af gullmolum félagsins frá upphafi er Dóra María Lárusdóttir, sem hefur glatt augu Valsara um áraraðir og á stóran stað í hjörtum allra Valsara. Dóra María er ótrúlega leikinn með knöttinn og sendingageta hennar og yfirsýn er á heimsklassa. Dóra hefur ávallt leikið fyrir Val þrátt fyrir ýmis gylliboð annara félaga bæði innanlands sem utan.

Fullt nafn? Dóra María Lárusdóttir

Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? Ég var sexa yngri flokkum en hún var ekki laus þegar ég mætti á meistara. Tían varð fyrir valinu og þótti mér fljótlega afar vænt um hana enda mjög falleg og slétt.


Besti vinur/vinkona þín í Val er?
Krissi Haff


Upphalds staða á vellinum?
Sókn/miðja


Hver var átrúnaðargoðið þegar þú varst lítil?
Kleópatra


Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað?
Spilaði þrjá vetur með háskólaliði Rhode Island Rams í Bandaríkjunum. Annars ekkert nema VALUR.


Hvað er það fyrsta sem þér dettur hug þegar þú heyrir orðin Freyr og Alexandersson?
Er það ekki dúddinn sem setti 10 klínur með Skólphreinsun Ásgeirs á móti Val b í handboltanum um árið?


Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra?
  Vinn hjá SP-Fjármögnun og stunda nám fjármálahagfræði.


Hver er frægasti ættingi þinn?
Ætli það sé ekki frú forsætisráherra.


Upphalds band og lag?
  Afskaplega erfitt að gera upp milli. Ég er mikið fyrir íslenskar hljómsveitir, bæði ungar sem aldnar (aðallega aldnar samt)! Heyr mína bæn með Ellý Vilhjálms klikkar seint.