Hallbera er gott dæmi um leikmann sem uppsker eins og hann sáir. Hallbera kom til Vals fyrir leiktímabilið 2006 sem óharðnaður leikmaður frá ÍA. Með mikilli vinnu, dugnaði og frábæru hugarfari hefur Hallbera fest sig í sessi sem einn allra sterkasti leikmaður liðsins. Hallbera er hrókur alls fagnaðar og hópnum einstaklega mikilvæg innan vallar sem utan.
Fullt nafn? Hallbera Guðný Gísladóttir
Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? 11, fór mér svo vel
Uppáhalds staða á vellinum? Vinstri hliðin eins og hún leggur sig
Hver var átrúnaðargoðið þegar þú varst lítil? Ryan Giggs
Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað? ÍA
Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra? Sölufulltrúi hjá Vodafone og er að læra Sögu í HÍ
Hver er frægasti ættingi þinn? Er Rikki Daða frægur?
Uppáhalds band og lag? In the Ghetto með Elvis Presley