Svarta perlan Rakel Logadóttir er ein af perlum Hlíðarenda liðsins. Hún hefur glatt Valsara um áraraðir með frábæri boltatækni, leifturhraða og mikilli útsjónarsemi. Rakel nálgast leikjamet Ragnheiðar Víkingsdóttur óðfluga og virðist bara verða betri með aldrinum.
Fullt nafn? Rakel Logadóttir
Treyjunúmer og af hverju valdir þú það? Cantona var nr. 7 svo fannst mér það bara flottasta talan!
Besti vinur/vinkona þín í Val er? Magga húsvörður og Ragga kitt þegar hún er í góðu skapi.
Uppáhalds staða á vellinum? Kantur því ég hef nú lítið verið að prufa aðrar stöður..
Hver var átrúnaðargoðið þegar þú varst lítil? Ryan Giggs og hann er enn legendary!!
Með hvaða liðum öðrum en Val hefur þú spilað? ÍBV
Við hvað starfar þú/hvað ertu að læra? Ég er íþróttakennari og þjálfari
Hver er frægasti ættingi þinn? Ég veit það ekki...
Uppáhalds band og lag? Dikta um þessar mundir en þeir eru með mörg góð lög sem erfitt er að gera upp á milli...