Félagið hefur tekið í notkun nýtt skráningarkerfi og þurfa forráðamenn að skrá börn sín inn í kerfið og ganga um leið frá greiðslu, þetta á líka við um þá sem þiggja akstur með Valsrútunni. Slóðin inn á skráningarvefinn er
https://valur.felog.is/. Leiðbeiningar um skráningu og greiðslu er að finna í pdf-skjali á forsíðu heimasíðunnar. Kerfið er samtengt Rafrænni Reykjavík og því er mjög auðvelt að ráðstafa styrknum á sama tíma, sem svo dregst frá heildarupphæðinni. Kerfið býður uppá að skipta upp kreditkortagreiðslu á nokkur tímabil, allt eftir upphæð æfingagjalda. Ef óskað er eftir að greiða með öðrum hætti þarf viðkomandi að koma á skrifstofu Vals eða að hafa samband á skrifstofutíma kl.9:00-16:00.