-
Foreldraráð er tengiliður milli iðkenda, foreldra, þjálfara og yfirþjálfara. Talsmaður foreldraráðs er jafnframt tengiliður við yfirmann barna- og unglingasviðs félagsins.
-
Í upphafi hvers starfsárs, að hausti skulu foreldrar skipa a.m.k. þriggja manna foreldraráð í hverjum yngri flokka félagsins (iðkendur undir 16 ára)
-
Foreldraráð sinnir mikilvægum verkefnum við undirbúining mótahalds, fjáraflanir og önnur verkefni fyrir viðkomandi flokk.
-
Foreldraráð skal hafa náið samstarf við þjálfara flokksins vegna leikja og keppnisferða.
-
Foreldrar skulu að öllu jöfnu kosta ferðir og uppihald á óopinber mót og skal foreldraráð skipuleggja fjáraflanir til að létta róðurinn við að standa straum af kostnaði.
-
Foreldraráð skal skipuleggja allar styttri ferðir flokka á Íslandsmót og æfingamót í samvinnu við þjálfara. Reynt verði að koma því við að ferðast á einkabílum á leiki sem eru í 100 km (fram og tilbaka) fjarlægð frá Reykjavík.
-
Foreldraráð skal virkja sem flesta foreldra til starfa fyrir flokkinn, því margar hendur vinna létt verk.
Sem foreldri getur þú tekið þátt í því að gera íþróttir barna og unglinga að eftirminnilegri og jákvæðri reynslu. Hér eru nokkrar ábendingar sem vert er að gefa gaum.
-
Komdu á æfingu eða á leiki þegar þú getur. Það virkar hvetjandi fyrir barnið líka þegar það eldist.
-
Hrósið öllum iðkendum meðan á æfingum eða leik stendur, ekki aðeins dóttur þinni eða syni.
-
Hvetjið börnin bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs, ekki gagnrýna.
-
Berið virðingu fyrir störfum þjálfarans, ekki reyna að hafa áhrif á störf hans á meðan á leik stendur.
-
Dómarinn á að gæta að öryggi barnanna, dæma leikinn sanngjarnt eftir bestu getu og stuðla að ánægjulegum leik fyrir börnin. Ekki gagnrýna ákvarðanir hans.
-
Hafið áhrif og hvetjið börnin til þátttöku, íþróttir eiga að vera skemmtilegar.
-
Spyrjið hvort leikurinn eða æfingin hafi verið skemmtileg eða spennandi, úrslitin eru ekki alltaf aðalatriðið.
-
Sýnið starfi félagsins virðingu. Verið virk á foreldrafundum þar sem umræður fara fram um þjálfun og markmið félagsins, þar er ykkar vettvangur.
-
Mundu að það er barnið þitt sem er þátttakandi í íþróttum – ekki þú. Sumum foreldrum hættir til að gleyma því.
-
Standið saman um fjáraflanir og félagstarf í yngri flokkunum.
-
Leggið ykkar að mörkum til að íþróttaiðkun barna ykkar verði raunveruleg forvörn gegn hvers kyns vá. Sjá einnig
Foreldrabæklingur KSÍ