Knattspyrnufélagið Valur

4.fl. karla í handbolta gerði góða ferð til Akureyrar

4. flokkur karla fór um síðast liðna helgi í keppnisferð til Akureyrar og Húsavíkur þar sem spilaðir vour þrít leikir á jafn mörgum dögum. Þetta var svokölluð handbolta helgi þar sem strákarnir gerðu ekkert annað en að spila handbolta og fylgjast með okkar mönnum á EM. Ferðin gekk vel fyrir sig í alla staði, bæði innan vallar sem utan. Strákarnir unnu fyrstu tvo leikina á móti Þór Ak. og Völsungi en urðu að játa sig sigraða í síðasta leiknum á móti Þór Ak.

Vil ég þakka strákunum, farastjóra og öllum þeim sem að ferðinni komu.

 

Kveðja Maksim Akbachev, þjálfari