
Um næstu helgi fara fram æfingar U17, U19 og A landsliða kvenna í knattspyrnu. Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur valið þær Elínu Mettu Jensen, Hólmfríði Magnúsdóttur, Katrínu Gylfadóttur, Kristínu Ýri Bjarnadóttur, Mist Edvardsdóttur, Rakel Logadóttur og Þórdísi Maríu Aikman til æfinga með A liðinu.
Þá hefur Ólafur Þór Guðbjörnsson landsliðsþjálfari U19 valið þær Hildi Antonsdóttur, Svövu Rós Guðmundsdóttur og Telmu Ólafsdóttur.
Þorlákur Árnason landsliðsþjálfari U17 hefur valið þær Berglindi Rós Ágústsdóttur, Kötlu Rún Arnórsdóttur, Ingunni Haraldsdóttur og Lísbeti Sigurðardóttur. Myndin með fréttinni er af Elínu Mettu Jensen.