Knattspyrnufélagið Valur

Búið að draga í Eimskipsbikarnum

Í gær var dregið í 4-liða úrslit Eimskipsbikar kvenna og í pottinum að þessu sinni voru Valur, FH, ÍBV og Stjarnan.  Það fór svo að Valur fékk heimaleik á móti Stjörnunni en ÍBV fékk heimaleik á móti FH.  Ráðgert er að þessir leikir fari fram 7.eða 8.febrúar og mun það skýrast á næstu dögum.

Næsti leikur hjá stelpunum í N1 deildinni er svo á næst komandi laugardag en þá koma einmitt stjörnustúlkur í heimsókn að Hlíðarenda og hefst leikurinn kl 14:00 og viljum við hvetja fólk til að mæta og styðja við bakið á stelpunum, þær eiga það svo sannarlega skilið.