Þorlákur Árnason landsliðsþjálfari U17 hefur valið tvo æfingahópa fyrir næstu helgi og í þeim eru fimm Valsstelpur. Í æfingahópi U17 er Hugrún Arna Jónsdóttir, en þær Elín Metta Jenssen, Hildur Antonsdóttir, Ingunn Haraldsdóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir í æfingahópi U16. Við óskum þessum stelpum til hamingju með þetta og góðs gengis á æfingunum.