Valur 7-0 KR
1-0 Kristín Ýr Bjarnadóttir ('5)
2-0 Björk Gunnarsdóttir ('13)
3-0 Kristín Ýr Bjarnadóttir ('23)
4-0 Dóra María Lárusdóttir ('33)
5-0 Kristín Ýr Bjarnadóttir ('49)
6-0 Hallbera Guðný Gísladóttir ('82, víti)
7-0 Björk Gunnarsdóttir ('90)
Valur styrkti stöðu sína á topp deildarinnar í dag þegar að þær völtuðu yfir KR á Vodafone vellinum í 15 umferð Pepsi deildar kvenna.
Fyrir leikinn voru KR konur í sjötta sæti deildarinnar með 22 stig en Valsarar í efsta sæti með 33 stig. Aðstæður voru mjög góðar á einum flottasta velli landsins en áberandi var hversu fáir áhorfendur voru mættir.
Valskonur tóku yfirhöndina strax í byrjun og á skoruðu fyrsta markið á 5 mínútu þegar að Hallbera Guðný Gísladóttir á góða sendingu fyrir markið þar sem markaskorarinn Kristín Ýr Bjarnadóttir var mætt, skallaði boltann í stöngina en náði frákastinu og lagði boltann í netið.
Á 11 mínútu voru KR nálægt því að jafna, Sonja Björk Jóhannsdóttir sem var einn besti leikmaður gestanna í dag, fékk langa þversendingu inn fyrir vörnina en lét Maríu Björg Ágústsdóttur markvörð Vals verja frá sér.
Eftir þetta tóku Valskonur öll völd á vellinum og bættu við öðru marki á 13 mínútu. Björk Gunnarsdóttur þrumaði boltanum í netið með skoti fyrir utan teig. Glæsilegt mark hjá Björk og Valskonur komnar í 2-0.
Heimakonur héldu áfram að sækja og á 20 mínútu var mark dæmt af þeim réttilega vegna rangstöðu. Þær voru þó ekki lengi að bæta fyrir það því tveim mínútum seinna var Kristín Ýr mætt aftur inní vítateiginn og skoraði glæsilegt skallamark eftir hnitmiðaða sendingu frá Rakel Logadóttur.
Valsarar bættu við fjórða markinu fyrir leikhlé. Dóra María Lárusdóttir skoraði eitt glæsilegasta mark sumarsins þegar hún smellhitti boltann með skoti fyrir utan teig, sláin inn. Staðan 4-0 í hálfleik í mjög svo fjörugum leik.
Valskonur gáfu KR engan séns að klóra í bakkann í síðari hálfleik því á 49 mínútu bættu þær við fimmta markinu. Kristín Ýr fullkomnaði þrennu sína með öðru skallamarki og aftur var var það eftir frábæra sendingu frá Rakel Logadóttur.
KR voru betri í síðari hálfleik heldur en þeim fyrri og eiga hrós skilið fyrir að halda áfram að berjast. Á 53 mínútu fékk Hafrún Olgeirsdóttir besta færi þeirra í leiknum. Hún fékk sendingu inn fyrir vörn Vals, lék á Maríu Björg í markinu en skotið var framhjá.
Á 81 mínútu fengu Valsarar vítaspyrnu þegar að Thelma Björk Einarsdóttir var á leið með að spóla sig í gegnum vörn KR þegar hún var toguð niður. Hallbera Guðný Gísladóttir fór á punktinn og skoraði örugglega. Staðan orðin 6-0 fyrir heimakonur.
Valsarar settu harða pressu á KR síðustu mínúturnar og áttu sláarskot ásamt því að bjargað var á línu með örfárra mínútna millibili. Valur náði þó að skorað sjöunda markið á 90 mínútu þegar að Embla Grétarsdóttir sendi boltann fyrir á Björk Gunnarsdóttur sem skaut föstu skoti milli lappanna á Hrafnhildi Agnarsdóttur í marki KR.
Lokatölur 7-0 fyrir Val sem voru að spila frábæra knattspyrnu í dag. Allir leikmenn Vals voru að spila vel en þó sérstaklega þær Kristín Ýr og Hallbera Guðný. Sonja Björk Jóhannsdóttir var besti leikmaður KR áður en hún fór útaf. Valur eru enn á toppnum nú með 36 stig en KR situr í því sjötta með 22.
Valur: María Björg Ágústdóttir, Rakel Logadóttir (Heiða Dröfn Antonsdóttir), Katrín Jónsdóttir(Dagný Brynjarsdóttir), Kristín Ýr Bjarnadóttir(Katrín Gylfadóttir), Dóra María Lárusdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir, Thelma Ólafsdóttir, Thelma Björk Einarsdóttir, Helga Sjöfn Jóhannesdóttir, Embla Sigríður Grétarsdóttir, Björk Gunnarsdóttir.
Ónotaðir varamenn: Þórdís María Aikman, Andrea Ýr Gústavsdóttir, Guðlaug Rut Þórsdóttir, Þorgerður Elva Magnúsdóttir.
KR: Hrafnhildur Agnarsdóttir, Kristín Sverrisdóttir(Selja Ósk Snorradóttir), Freyja Viðarsdóttir, Rebekka Sverrisdóttir, Sonja Björk Jóhannsdóttir(Guðlaug Sara Guðmundsóttir), Lára Hafliðadóttir, Lilja Dögg Valþórsdóttir, Katrín Ásbjörnsdóttir, Mist Edvardsdóttir, Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir(Júlíanna Einarsdóttir), Hafrún Olgeirsdóttir.
Ónotaðir varamenn: Guðrún María Johnson, Svava Björnsdóttir, Særún Rafnsdóttir, Svala Rakel Hjaltadóttir.