Knattspyrnufélagið Valur

Góður heimasigur Valsstúlkna á Haukum!

Sigurganga Vals í N1 deild kvenna hélt áfram í dag, laugardag, þegar liðið sigraði Hauka 27-22, í leik sem var jafnari en lokatölurnar gefa til kynna. Stelpurnar eru því enn ósigraðar eftir 17 leiki í deildinni, en 15 þeirra hafa unnist og tvisvar hefur liðið gert jafntefli.

Leikurinn í dag var jafn frá fyrstu mínútu, en þó sveiflaðist forystan eitthvað milli liðanna framan af. Valsstúlkur komust í 7-4 um miðjan fyrri hálfleik, en eftir að hafa tekið leikhlé snéru Haukastúlkur blaðinu sér í hag og komust yfir. Valur náði síðan aftur forystunni rétt fyrir hlé, 12-10, en Haukar skoruðu 2 síðustu mörk hálfleiksins og staðan 12-12 í hálfleik.

Síðari hálfleikur fór ekki vel af stað hjá Val og um miðjan hálfleikinn voru Haukar komnir með þriggja marka forystu, 18-15. Þá hrukku stelpurnar í gang, söxuðu jafnt og þétt á forskotið, jöfnuðu leikinn 20-20 og komust yfir í kjölfarið. Lokamínúturnar voru síðan eign stelpnanna sem sigldu örugglega fram úr Haukaliðinu og unnu fimm marka sigur eins og áður sagði, 27-22.

Það var virkilega jákvætt að sjá til liðsins á köflum í dag, Haukaliðið hefur spilað mjög vel eftir áramót og sérstaklega sýndu stelpurnar góðan karakter um miðjan seinni hálfleik, þegar leikurinn virtist vera að falla Haukamegin. Hrafnhildur Skúladóttir átti enn einu sinni góðan dag og skoraði 9 mörk, auk þess sem Begga átti fínan leik á milli stanganna. Allt liðið fær hrós fyrir lokamínúturnar og að sjálfsögðu fyrir frábæran sigur gegn erfiðu liði.

Hér að neðan má sjá markaskorara leiksins í dag:

Mörk Vals: Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 9, Katrín Andrésdóttir 5, Íris Ásta Pétursdóttir 5, Ágústa Edda Björnsdóttir 4, Anna Úrslúla Guðmundsdóttir 3, Kristín Guðmundsdóttir 1.
Mörk Hauka: Hanna Guðrún Stefánsdóttir 7, Ramune Pekarskyte 6, Eseter Óskarsdóttir 4, Erna Þráinsdóttir 2, Þórunn Friðriksdóttir 2, Nína Björk Arnfinnsdóttir 1.

Næsti leikur stelpnanna er eftir rúma viku, þegar þær mæta Stjörnunni í undanúrslitum Eimskipsbikarsins, nánar tiltekið sunnudaginn 14. febrúar kl. 16:00.