Knattspyrnufélagið Valur

Haraldur Björnsson til Noregs.

Einn af dáðadrengjum Vals og markmaður okkar Valsmanna skrifaði í dag undir samning til ársins 2014 við norska liðið Sarpsborg 08. Haraldur er uppalinn hjá félaginu en lék um tíma með liði Hearts í Skotlandi. Haraldur var markvörður 21 árs liðs Íslands á síðasta Evrópumóti og hefur verið valinn í æfingahóp A-landsliðs Íslands. Valsmenn þakka Haraldi fyrir hans framlag og óska honum velfarnaðar og velgengni í Noregi.