Knattspyrnufélagið Valur

Grátlegt tap á Ásvöllum

Karlalið Vals í handbolta fór tómhent heim af Ásvöllum í kvöld eftir mikinn baráttuleik, þar sem úrslitin réðust með vítakasti eftir að venjulegum leiktíma lauk. Lokatölur í leiknum 25-24 eftir að Valsstrákarnir höfðu verið skrefinu á eftir mestallan leikinn. Mikil barátta einkenndi þó liðið í kvöld, sem var plagað af meiðslum lykilmanna, en of mörg dauðafæri fóru forgörðum og því fór sem fór.

Það fer að verða fastur liður að tala um meiðsli lykilmanna, enda hefur þessi vetur sannarlega verið ótrúlegur að því leyti. Í kvöld sátu Sigfús Páll Sigfússon, Sigurður Eggertsson, Baldvin Þorsteinsson, Ernir Hrafn Arnarson og Sigfús Sigurðsson allir upp í stúku. Það munar svo sannarlega um minna.

Elvar og Ingvar voru markahæstir okkar manna í kvöld með 5 mörk hvor og situr liðið nú í 4 sæti deildarinnar. Hér að neðan má sjá viðtal við Elvar Friðriksson af www.visir.is :

„Við mættum hérna með okkar lið og ætluðum bara að svara fyrir þessa vitleysu sem fram fór í höllinni um síðustu helgi. En svona getur þetta verið, það vantaði ekki dramatíkina í þetta," sagði Elvar Friðriksson, leikmaður Vals, eftir grátlegt tap gegn Haukum í kvöld, 25-24, þar sem Haukamenn stálu sigrinum í lokin.

Elvar var góður í sókninni hjá Valsmönnum og skoraði fimm mörk, en það reyndist ekki nóg að þessu sinni. Hann var ánægður með baráttuna og mannskapin sem var til staðar, því margir leikmenn eru á sjúkralistanum hjá Valsmönnum um þessar mundir.

„Við vorum að berjast eins og ljón og stóðum vel í þeim á tímabili. Gerðum eins vel og við getum með okkar mannskap, það eru margir í meiðslum þannig þetta var erfitt. Þetta var hrikalega leiðinlegt og grimmilegt," sagði Elvar, hundfúll eftir leik í kvöld.