Knattspyrnufélagið Valur

Meistaraflokkur kvenna á góðri siglingu

Kvennalið Vals í  knattspyrnu siglir nú hraðbyri að sínum fimmta Íslandsmeistaratitli í röð, og þeim sjötta á sjö árum. Að auki koma þrír markahæstu leikmenn mótsins allir úr Val, en þær Kristín Ýr Bjarnadóttir, Björk Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir hafa samtals skorað 40 af þeim 63 mörkum sem liðið hefur sett í sumar. Sannarlega stórglæsilegur árangur hjá flaggskipi félagsins.

Næsti leikur stelpnanna er gegn Aftureldingu úti, en á sama tíma leika helstu keppninautar þeirra um titilinn, Þór/KA, við Stjörnuna í Garðabæ. Fari svo að norðanstúlkur tapi stigum þar og Valur sigri Mosfellinga þá er bikarinn kominn á Hlíðarenda og tekur sér stöðu við hliðina á Vísa bikarnum, sem þær hafa nú þegar unnið í sumar!


Við hvetjum alla til að mæta á næstu leiki kvennaliðs Vals!

laugardaginn 4. sept. klukkan 14:00

Afturelding (ú)

sunnudaginn 19. sept. klukkan 13:00

Grindavík (h)

sunnudaginn 26. sept. klukkan 14:00

Breiðablik (ú)