Um helgina kepptu 7.flokkur kvenna á Ákamóti HK í Digranesi. Mótið var einstaklega vel skipulagt og verðlaunin hvergi betri J Stelpurnar stóðu sig frábærlega vel og engin spurning um að hér eru á ferð margar upprennandi stjörnur. Við sendum 4 lið til keppni þannig að allar stelpurnar fengu vænan spilatíma og voru mörg mörk skoruð. Foreldrar voru duglegir að mæta og styðja við bakið á stelpunum og það voru stoltir foreldrar og glaðar stelpur sem yfirgáfu Digranesið eftir mótið.
Takk kærlega fyrir helgina!
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, þjálfari