Knattspyrnufélagið Valur

Ragnarsmótið í beinni á sporttv.is

Hið árlega Ragnarsmót, sem er æfingamót í handknattleik,  hefst í dag á Selfossi. Sex úrvalsdeildarlið taka þátt og er leikið í tveim riðlum. Mótið verður sent út í heild sinni á Sport TV.

Í A-riðli eru HK, FH og Selfoss, en í B-riðli eru Haukar, Fram og Valur.

Leikjaniðurröðunin er eftirfarandi:
Miðvikudagur 1. sept.

HK-FH kl. 18:30

Haukar-Fram kl. 20:00

Fimmtudagur 2. sept.

HK-Selfoss kl. 18:30

Haukar-Valur kl. 20:00

Föstudagur 3. sept.

Selfoss-FH kl. 18:30

Fram-Valur kl. 20:00

Laugardaginn 4.sept.

spilað um sæti á mótinu:

Leikur um 5. sæti
kl. 12:00

Leikur um 3. sæti
kl. 16:00

Leikur um 1. sæti
kl.18:00


Auk farandbikars sem veittur er fyrir sigur á mótinu (og er í vörslu FH síðan í fyrra) verða veitt verðlaun fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti á mótinu.

Einnig munu verða veitt verðlaun fyrir besta leikmanninn, besta sóknarmann, besta varnarmann, besta markmann og markahæsta leikmann.

Athugið að einnig verður leikur  Vals og Iuventa í Evrópukeppni kvenna í handbolta sýndur beint á sporttv.is sunnudaginn 5 september klukkan 20:00.