Leikur Vals og Þórs í N1 deild kvenna fer seint í sögubækurnar fyrir spennu. Til þess var getumunur liðanna of mikill. Valsstelpurnar komu einbeittar til leiks en engin eins tendruð og Jenný sem varði 6 fyrstu skotin sem komu á markið. En á sama tíma skoruðu Valsstelpurnar 4 mörk. Fyrri hálfleikurinn leið þannig að Valsstelpur skoruðu tvöfalt fleiri mörk en norðanstelpurnar, en ekki þó þannig að hverju marki væri svarað með tveimur heldur röðuðu Valsstelpurnar inn nokkrum mörkum í röð og höfðu hægt um sig þess á milli. Í fyrri hálfleik áttu Valsstelpurnar þrjá slíka kafla. Þær skoruðu sem fyrr segir fyrstu fjögur mörkin á fjórum mínútum, þá skoruðu þær fimm mörk í röð á þriggja mínútna kafla sem hófst á 12. mínútu og loks þrjú mörk á tæpum tveimur mínútum þegar 11 mínútur lifðu af hálfleiknum. Staðan var 18 – 9 í hálfleik.
Stefán þjálfari Vals breytti liðinu nokkuð í hálfleik. Reynsluboltarnir Hrafnhildur og Dagný komu ekkert við sögu í seinni hálfleik. Karólína spilaði bara fram í miðjan seinni hálfleik. En Jenný spilaði þar til um 10 mínútur lifðu af seinni hálfleik. En þær Kristín og Ragnhildur Rósa spiluðu allan leikinn.
Í byrjun seinnihálfleiks virtust Akureyringarnir ætla sér að komast betur inn í leikinn. Þær áttu fyrsta mark hálfleiksins og skoruðu snemma fjögur mörk í röð og náðu að minnka muninn í 6 mörk. En nær komust þær ekki og munaði þar mestu um frábæra vörn og markvörslu Valsstelpna. En þess utan misstu norðanstelpurnar Ásdísi Sigurðardóttur út af með sína þriðju brottvísun og þar með rautt, þegar um 10 mínútur voru til leiksloka. Leiknum lauk með öruggum sigri Vals, 30-19.
Þrátt fyrir að þessi leikur fari ekki í sögubækurnar þá var margt lofsvert í leik Valsstelpna. Atkvæðamestar í markaskorun voru þær Karólína og Ragnhildur Rósa. En það var samt vörnin og markvarslan sem bar af. Jenný varði eins og berserkur og þegar Sigríður leysti hana af í lokin þá hélt hún algjörlega sömu línu og Jenný hafði lagt. Kristín og Heiðdís náðu vel saman í vörninni. Það var sérstaklega gaman að sjá flotta varnarvinnu hjá Heiðdísi. Hún var áberandi kvik á fæti, staðsetningar og tímasetningar hennar og öll viðbrögð voru kennslubókardæmi um hvernig skuli spila vörn. Þess utan var hún afar sterk í návígum og negldi andstæðingana fasta án þess að eiga á hættu brottvísun. Við í óstofnuðu félagi áhugamanna um almennilegan varnarleik erum hrifnir af slíkum tilþrifum.
Undirritaður gerir alvarlegar athugasemdir við fjölda mislukkaðra hraðaupphlaupa. 6 sinnum færði ég til bókar sendingar sem ætlaðar voru í hraðaupphlaup sem annað hvort voru of langar eða andstæðingarnir gripu boltann. Góð hraðaupphlaup eru gulls ígildi og það er frábært að geta raðað inn mörkum eftir snögga sendingu fram völlinn. En ef þorri sendinganna fer forgörðum þá er eins gott að gefa á næsta mann og byggja upp yfirvegaðar sóknir sem enda með almennilegu markskoti.
Helstu tölur, markvarsla: Jenný varði 25 skot í leiknum, þar af 18 í fyrri hálfleik. Sigríður varði 5 skot. Mörk: Karólína skoraði 8 mörk, Ragnhildur Rósa 7, Kristín 5, Dagný 4, Hrafnhildur 4, Ágústa 1 og Þórunn 1.
Næsti leikur er einn allra mikilvægasti leikur keppnistímabilsins, en hann er gegn Fram í Eimskipsbikarnum. Leikurinn fer fram í Vodafonehöllinni, Hlíðarenda kl. 19:30 á miðvikudag. Þar skulum við fjölmenna og hvetja Valsstelpurnar til sigurs.
23. janúar 2012
Sigurður Ásbjörnsson