Knattspyrnufélagið Valur

Stelpurnar komnar í undanúrslit Eimskipsbikarsins

Það var ljóst strax í upphafi leiks Valsstelpna að þær ætluðu ekki að láta grípa sig í bólinu.  Einbeitingin skein úr andlitum stelpnanna og leikur þeirra var afar markviss.  Enda tók það stelpurnar eingöngu 8 mínútur að komast í 6-0.  Á sama tíma varði Jenný 3 skot og vörnin annað eins.  Fram stelpur náðu að komast betur inn í leikinn og í hálfleik var fjögurra marka munur á liðunum 12-8 fyrir Val.  Í seinni hálfleik héldu Valsstelpur yfirhöndinni allt til loka þar sem munurinn fór í fimm mörk þegar hann varð mestur en einu sinni náðu Framstelpur að minnka muninn niður í tvö mörk.  Leiknum lauk með sanngjörnum sigri Vals 24-21.

Helstu tölur:  Markvarsla:  Jenný varði 13 skot (þar af 1 víti), Sunneva varði 4 skot (þar af 2 víti).  Mörk: Anna Úrsúla 7, Kristín 6, Hrafnhildur 5, Ragnhildur Rósa 3, Karólína 2 og Dagný 1.

Líkt og undanfarin ár eru lið Fram og Vals bestu liðin á landinu.  Á því er enginn vafi enda 10 landsliðsmenn að spila í gærkvöldi.  Að mati undirritaðs vannst þessi leikur á nokkrum veigamiklum atriðum.  Einbeiting Valsstelpna var frá upphafi gríðarlega góð.  Varnarleikurinn var mun betri heldur en í fyrri leiknum sem tapaðist í Safamýrinni. Í fyrri hálfleik voru þær Ragnhildur Rósa og Anna Úrsúla eins og múrveggur gegn vinstri væng Framara.  Að þessu sinni spiluðu Valsstelpurnar 5-1 vörn lengstum og tóku Stellu úr umferð í seinni hálfleik.  Þá voru Valsstelpurnar mjög fljótar til baka og fengu Framarar sárafá hraðaupphlaup.  Þá má ekki gleyma því að Jenný varði oft á gríðarlega mikilvægum augnablikum.

Athygli vakti að tvær stelpur sem spiluðu með Val í fyrra dúkkuðu upp eftir nokkra fjarveru.  Annett Köbli  hafði fundið sér bláa treyju og kom inn á í vinstri skyttu Fram.  Þá var gleðilegt að sjá Rebekku Rut mæta til leiks að nýju.  Ég hélt reyndar að það væri ekki rými fyrir hana í liðinu þar sem systir hennar hefur farið á kostum í vinstra horninu í vetur.  En Rebekka spilaði eingöngu vörn og var í hlutverki indíánans fyrir utan í 5-1 vörn liðsins.  Rebekka stóð sig frábærlega.  Hún gerði nákvæmlega það sem ætlast var til með hraðri færslu sem riðlaði spili Fram og sendi þær út undir miðju til að spila sín í milli.

Þó svo að hér hafi verið nafngreindir nokkrir leikmenn vegna góðrar frammistöðu þá var það vitaskuld liðsheildin sem skilaði sínu.  Það var vel gert hjá stelpunum að leggja Fram að velli eftir fremur snautlega útreið í Safamýrinni fyrir skömmu.  Þó svo að Valsstelpur hafi lagt öflugt lið Fram að velli þá fer því fjarri að bikarmeistaratitill sé í höfn.  Eins og allir vita þá spilast bikarleikir iðulega allt öðru vísi en deildarleikir.  Það er mikill munur að spila í bikarkeppni þar sem mótið er búið fyrir þann sem tapar leik eða í deild þar sem liðum leyfist að misstíga sig lítillega.  Það er því mikilvægara en nokkru sinni að hugarfarið sé rétt.  Það er enginn leikur unninn fyrirfram og ljóst að hugarfarið verður erfiðasti andstæðingur stelpnanna ef þær halda að það séu auðveld verkefni framundan.  En það er líka viðfangsefni okkar stuðningsmannanna að halda þeim við efnið, líkt og bekkjarfélagið gerði í stúkunni í gær.  En í stúkunni sást til feiminna, hljóðlátra, dagfarsprúðra karla og kvenna sem öskruðu sig hás í stuðningi við Valsstelpurnar.  Við þurfum meira af slíku.  Áfram Valur!

26. janúar 2012

Sigurður Ásbjörnsson