
Valsstelpurnar í handboltanum eru greinilega búnar að jafna sig á vonbrigðum síðustu helgar og byrjaðar að einbeita sér að deildinni. Stelpurnar fóru norður yfir heiðar og gjörsigruðu lið KA/Þórs með 31 marki gegn 13. Stelpurnar eru því enn ósigraðar á toppi deildarinnar þegar 5 umferðum er ólokið, með 38 stig eftir 20 leiki, sem er sannarlega glæsilegur árangur.
Valsliðið vann þarna sinn 12 sigur í deildinni í röð og samkvæmt
www.visir.is er þetta lægsta skor liðs á móti Val í vetur, en einu sinni áður hefur Valur haldið andstæðingi sínum í 13 mörkum, gegn Víkingi á heimavelli.
Það eru nú 4 leikir eftir í deildinni hjá Valsliðinu, en þær sitja einu sinni hjá í síðustu 5 umferðunum. Valur er á toppnum með 38 stig eins og áður sagði að loknum 20 leikjum. Í öðru sæti eru bikarmeistarar Fram með 33 stig, næst kemur Stjarnan með 29 stig og í fjórða sæti eru Haukar með 26, en öll þessi lið eiga leik til góða á Valsliðið. Það er orðið ljóst að þessi fjögur lið munu leika í úrslitakeppninni sem hefst eftir rúman mánuð, það er einungis spurning í hvaða röð liðin lenda, en töluvert er eftir af innbyrðis viðureignum.
Valur á eftir heimaleik við botnlið Víkings, útileiki við Stjörnuna og HK og síðan heimaleik við Fram í lokaumferðinni undir lok þessa mánaðar. Framliðið á einnig eftir að spila við Stjörnuna og Hauka. Það verður því spennandi að fylgjast með lokaleikjum deildarinnar og stelpurnar okkar í lykilstöðu til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn og heimaleikjarétt í allri úrslitakeppninni.
Hér að neðan má sjá markaskorara kvöldsins, hvetjum alla til að mæta í Vodafonehöllina á laugardaginn þar sem stelpurnar mæta Víkingum.
Mörk KA/Þór: Martha Hermansdóttir 3, Arna Valgerður Erlingsdóttir 3
Ásdís Sigurðardóttir 3, Emma Havin Sardardóttir 1, Kolbrún Einarsdóttir 1, Inga Dís Sigurðardóttir 1, Unnur Ómarsdóttir 1.
Mörk Vals: Ágústa Edda Björnsdóttir 6, Rebekka Skúladóttir 3, Hrafnhildur Skúladóttir 3, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Hildigunnur Einarsdóttir 3, Katrín Andrésdóttir 2, Kristín Guðmundsdóttir 2, Karólína Gunnarsdóttir 2, Íris Ásta Pétursdóttir 2, Arndís Erlingsdóttir 2, Nína K. Björnsdóttir 2, Soffía Gísladóttir 1. Berglind Íris Hansdóttir varði 23 skot í markinu.