Knattspyrnufélagið Valur

Þægilegur sigur á Stjörnumönnum

Í kvöld fór fram leikur Vals og Stjörnunar í N1-deild karla. Stjörnumenn voru fyrir leikinn í 7 sæti deildarinnar með 4 stig en okkar menn í því þriðja með 13 stig eftir 10 leiki. Fyrir fram var þá búst við tiltölulega þægilegum sigri Valsmanna. Það kom örlítið á óvart að frábær árangur íslenska landsliðsins leiddi ekki af sér fleiri áhorfendur en þeir voru einungis um 180

 

Leikurinn fór tiltölulega rólega af stað en Stjörnumenn leiddu allt þar til um miðbik fyrri hálfleiks. Eftir  það rönkuðu okkar menn aðeins við sér og náðu forystunni en hana létu þeir ekki af hendi það sem eftir var leiks.  Bubbi var virkilega góður í markinu og varði m.a. 2 víti með stuttu millibili. Valsmenn juku smátt og smátt forystuna og í hálfleik var staðan 13-9. Markaskorununin dreifðist tiltölulega jafnt á milli manna en Arnór var markahæstur eftir hálfleikinn með 4 mörk. Bubbi var kominn með 11 bolta í markinu og þar af 3 víti.

 

Síðari hálfleikurinn var tiltölulega jafn og voru Valsmenn alltaf með 3-5 marka forystu. Lítil spenna var í síðari hálfleiknum og endaði leikurinn 24-19 okkar mönnum í vil.

 

Þrátt fyrir slæma byrjun var leikurinn heldur þægilegur fyrir okkar menn. Sigurinn var aldrei í hættu og með sigrinum færðist liðið upp í 2. sætið þar sem Haukar unnu FH 25-24.

 

Næstkomandi sunnudag verður sannkölluð handknattleiksveisla að Hlíðarenda þegar að undanúrslitaleikir í bikarkeppninni fara fram. Klukkan 16:00  fer fram leikur Vals og Stjörnunar hjá stelpunum og kl. 18:00 keppa strákarnir á móti Gróttu.

 

Mörk Vals: Arnór 7, Siggi 4, Orri 3, Elvar, Ingvar, Gunnar Ingi og Jón Björgvin voru með 2 mörk og Sigfús Páll skoraði 1.

 

Bubbi var með 20 bolta í markinu (3 víti) og Ingvar Guðmundsson var með 1.