Knattspyrnufélagið Valur

Þér er boðið á stórleik sunnudaginn 5. september

Valur mætir Iuventa í EHF-bikarnum



Íslandsmeistarar Vals í handknattleik kvenna hefja leik í EHF-bikarkeppninni í handknattleik í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda kl. 20 á sunnudaginn kemur, 5.september. 

Eftirtalin fyrirtæki bjóða þér á þennan stórleik

Morgunblaðið Hópbílar  Hotel Cabin

 

Mótherjinn í þessari 1.umferð keppninnar er Iuventa frá Slóvakíu og fer síðari leikur liðanna fram í Michalovce í Slóvakíu laugardaginn 11.september. 

 

Iuventa varð í sjötta sæti slóvensku deildarinnar á síðustu leiktíð, en deildin samanstendur af liðum frá Slóvakíu og Tékklandi og telst býsna sterk.  Iuventa telst þriðja besta kvennalið Slóvakíu og hefur náð ágætum árangri á Evrópumótunum og komst m.a. í 16-liða úrslit Evrópukeppni bikarhafa fyrir tveimur árum.

Iuventa hefur einu sinni áður mætt íslensku liði í Evrópukeppni, mætti Stjörnunni í forkeppni Meistaradeildarinnar árið 2006, en þá var leikin riðlakeppni í Ungverjalandi.

 

Valsstúlkur hafa sem kunnugt verið í hópi bestu handboltaliða Íslands undanfarin ár og hömpuðu langþráðum Íslandsmeistaratitli á síðustu leiktíð.  Valur náði sínum besta árangri á Evrópumótunum árið 2006, en þá komst liðið í undanúrslit Áskorendakeppni Evrópu.  Mótherjinn þar var Constanta frá Rúmeníu, sem skartaði m.a. Alinu Tamasan, sem í dag leikur með Stjörnunni.

 

Sigurvegarinn í rimmu Vals og Iuventa mætir Vfl Oldenburg frá Þýskalandi í 2.umferð EHF-bikarkeppninnar.

 

 

Sunnudagur 5.september kl. 20.00 – 1.umferð EHF-bikarkeppni kvenna:

Valur – Iuventa