Knattspyrnufélagið Valur

Karla- og kvennalið Vals töpuðu úrslitaleikjum sínum í dag

Handboltaliðum Vals mistókst í dag að endurtaka leikinn frá því 1988 og 1993, en þau ár urðu karla- og kvennalið félagsins bæði bikarmeistarar. Hvorugu liðinu tókst að landa Eimskipsbikarnum, stelpurnar töpuðu 19-20 eftir hádramatískar lokamínútur, á meðan strákarnir töpuðu 23-15 í leik sem var þó í járnum lengst af.

Við þökkum Fram og Haukum fyrir leikina og óskum þeim til hamingju með Eimskipsbikartitlana.