Knattspyrnufélagið Valur

Skólaleikar Vals fara fram í annað sinn þriðjudaginn 9. mars!

Á þriðjudaginn verða Skólaleikar Vals haldnir í annað sinn, en þar keppa Austurbæjarskóli, Hlíðaskóli og Háteigsskóli í óhefðbundnum íþróttagreinum, eins og dodgeball o.fl. Leikarnir eru haldnir af Val í samstarfi við áðurnefnda skóla og heppnuðust afar vel í fyrra. Reiknað er með 4-500 börnum úr 5-7 bekk úr skólunum þremur á Hlíðarenda og ef að líkum lætur munu þau láta vel í sér heyra!