Fyrsta dómaranámskeið vetrarins verður haldið föstudaginn 3. september og laugardaginn 4. september. Bæði er um bóklega og verklega kennslu að ræða. Bóklega kennslan verður kennt í íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Á föstudeginum og á laugardagsmorgninum verður bókleg kennsla en bóklega og verklega prófið verður eftir hádegi á laugardegi. Námskeiðið verður á höfuðborgarsvæðinu.
Föstudagur:
18.00-22.00 bóklegt
Laugardagur
9.00-13.00 bóklegt og bóklegt próf
14.30-16.00 verklegt próf
Vakin er athygli á því að dómaramenntun er hluti af fræðsluáætlun KKÍ sem er komin til framkvæmda. Dómaranámskeið er hluti af fyrsta þrepi fræðslustigans.
Hér má sjá fræðsluáætlun KKÍ. - http://www.kki.is/skjol/fraedslumal_thjalfaramenntun_april09.pdf
Konur eru hvattar til að mæta enda vantar fleiri kvendómara í hreyfinguna.
Síðasti skráningardagur er 2. september. Námskeiðið stendur öllum til boða og að kostnaðarlausu.
Skráning er á kki@kki.is og þarf að taka fram nafn, kennitölu, síma, e-mail og félag.