Knattspyrnufélagið Valur

Eitthvað við allra hæfi í Vodafonehöllinni á laugardögum!

Það er sannkölluð fjölskyldustemmning á Hlíðarenda á laugardögum og á morgun verður engin undantekning þar á. Yngstu iðkendur félagsins leika listir sínar í Íþróttaskóla Vals milli 9:40 og 10:30 á hverjum laugardegi undir öruggri stjórn Soffíu Ámundadóttur og Kjartans Orra Sigurðssonar. Allir sem vilja taka þátt í skemmtilegu félagsstarfi hittast í Lollastúku milli kl. 10:00 og 14:00, rýna í getraunaseðilinn yfir rjúkandi kaffi og bakkelsi auk þess að taka létt spjall við félaga sína í Val. Á morgun er síðan leikur hjá handboltastelpunum klukkan 16:00, þannig að það er óhætt að segja að það verði fjör á morgun - við hlökkum til að sjá ykkur!