Knattspyrnufélagið Valur

Fjör í Sumarstarfi Vals!

Hið öfluga sumarstarf Vals hófst formlega í dag, en flestir grunnskólar hafa lokið sínu starfi. Fyrstu námskeið Sumarbúða í Borg og Knattspyrnuskóla Vals eru þar með farin af stað, en námskeiðið stendur út næstu viku. Alls verða námskeiðin fjögur talsins, en í kjölfarið á þessu fyrsta námskeiði fylgja þrjú tveggja vikna námskeið. Tæplega 90 börn eru skráð á þessi fyrstu sumarnámskeið og óhætt að segja að sumarið fari vel af stað!

Eins og undanfarin ár hefur afar hæft fólk fengist til starfa við umsjón námskeiðanna og má þar nefna Frosta Sigurðsson íþróttafræðing sem er skólastjóri Sumarbúða í Borg, auk þess sem margreyndir þjálfarar úr yngri flokka starfi Vals halda utan um Knattspyrnuskólann, m.a. Igor Bjarni Kostic, Rakel Logadóttir, Birkir Örn Gylfason, Margrét Magnúsdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir. Þeim til aðstoðar eru síðan öflugir unglingar úr félaginu og því má segja að starfið sé afar metnaðarfullt. Dagskráin er mjög fjölbreytt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þó ákveðinn rammi sé utan um námskeiðin er mikill sveigjanleiki í boði hvað varðar skráningar og eru foreldrar hvattir til að kynna sér þá möguleika sem eru í boði. Hægt er að skrá sig á námskeiðin með því að smella á "Sumarstarf" hér á forsíðu heimasíðunnar.