
Í næstu viku hefst vetrardagskrá félagsins og verða æfingar yngri flokka í handbolta og körfubolta samkvæmt æfingatöflum eins og þær birtast hér á heimasíðunni. Æfingatímarnir í fótbolta næstu tvær vikurnar eru bráðabirgðatímar og munu birtast á bloggsíðum hvers flokks fyrir sig. Þann 6. september hefst vetrardagskráin í fótboltanum með nýjum tímum og munu krakkarnir á eldra ári þá ganga upp í næsta flokk. Tímarnir í fótbolta munu birtast á heimasíðunni í næstu viku. Þann 6. september munu hinar vinsælu rútuferðir hefjast frá grunnskólunum í hverfinu og verða eins og áður í boði fyrir 6-9 ára börn. Skráningar í rútuna verða á skrifstofu félagsins eða á netfanginu
ragnhildur@valur.is