Páll Fannar Helgason hefur gengið til liðs við körfuknattleikslið Vals, en hann lék með Íslands- og Bikarmeisturum Snæfells á síðasta keppnistímabili. Páll Fannar er Völsurum að góðu kunnur en hann æfði með yngriflokkum Vals frá 13 ára aldri og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með Val tímabilið 2006-2007. Páll Fannar lék síðan með KR um tveggja ára skeið og eitt ár hjá Snæfelli. Páll Fannar lék fjölda landsleikja með yngri landsliðum og varð bikar og Reykjavíkurmeistari í tvígang með sínum árgangi í Val. Páll Fannar er góður liðsstyrkur fyrir meistaraflokk Vals fyrir átök komandi keppnistímabils og bjóðum við hann hjartanlega velkominn að Hlíðarenda.